Sunday, March 15, 2015

Langt síðan síðast :)

Jæja, mjög langt síðan ég skrifaði hér !!

Ég fékk leiðindar influensu og slæma barkabólgu í ofanálag og ég bara steinlá í um 2 vikur :o fór frammúr og fór á æfingu eftir rétt rúma viku í rúmlegu, og mér sló svona niður að ég lá í aðra viku :o

Jahérna hér.

Námskeiðið sem ég fékk í afmælisgjöf tikkar ennþá og ég bara búin að mæta í 1v af 3 :o hrikalegt alveg, og svo í ofanálag þá missti ég stjórnar af matarræðinu :o

Ég er hinsvegar ekki búin að þyngjast um það sem ég var búin að missa, en það er ekkert langt í það ef ég kem mér ekki í gírinn aftur :o

Ég er alveg að kúka á mig mér finnst svo erfitt að byrja matarræðinu aftur hehe

Góði hlutinn af þessum veikindum er sá að ég er ekki alveg eins háð pepsí maxinu, fæ mér oftar og oftar vatn að drekka bara :) sem er fínt

Jæja, skal stympla mig inn á morgun til að segja frá hvað ég er þung :) Alltaf vigtaður á mánudag á  námskeiðinu hehe, þá í öllum fötum og skóm.
Stend örugglega í stað bara :/