Jæja jæja :) Vika 4 bara búin.
Í Þessarri viku gerðist svosem ekki mikið, ég hoppaði einsog andskotinn hérna heima og uppskar svo sárar harðsperrur í fótunum að ég átti erfitt með að setjast á klóið haha
Pepsí maxið er bara :) og ekkert meira um það að segja haha
Fyrsti í nammidegi var hryllingur. Magakvalirnar sem ég fékk voru engu líkar og ég hélt ég myndi drepast, mér var meira að segja svo illt að vinkona mín var að spá í að keyra mig uppá bráðamóttöku í staðinn fyrir að fara með mig heim hehe
nammidagur nr 2 sem var núna á laugardaginn var aðeins skárri, líklega því ég fór í þorrablót hjá ömmu og fór ekkert mikið í þetta óhollasta :) Ætlaði að fá mér kfc og svo í ísbúðina en nei nei hehe
Fór jú smá í nammiland en meira en helmingur af namminu sem ég keypti er inní skáp, mars kakan sem ég ætlaði að baka er ennþá bara hugmynd hehe geri hana kanski á næsta laugardag, keypti mér svo uppáhalds kexið mitt, mhm það er enn inní skáp og ég sem keypti mér líka þristapoka og ætlaði mér sko að fá mér feita þrista, en nei nei ég fékk í magann og hafði svo bara enga lyst hehe þannig að þetta er hálf glatað dæmi hehe
Og það skrítnasta við þetta er að ég fæ alltaf í magann og verð hálf asnaleg daginn eftir :o kanski er það bara fyrst ég veit ekki hef aldrei komist svona langt í þessu matarræði áður, en við bara sjáum til :)
Verð samt að viðurkenna að þessir dagar eru smá erfiðir, fór til vinkonu minnar í gær og hún var að gera bollur, mig langaði svo mikið í bollur haha svo er baunasúpan, ég ELSKA baunasúpu
Spá í að fá tengdapabba til að geyma smá lögg handa mér :)
Svo er ég að verða 30 ára núna 8 apríl, gamla geitin hehe ég ætla að halda uppá afmælið þann 11 apríl (á eftir að bjóða fólki) og ég hafði það á laugardegi því ég ætla sko að belgja mig út af kökum og brauðréttum :) já maður er farin að plana lífið eftir þessu matarræði haha :)
En já nóg af rausi :) í þessarri viku fór kíló :) Og það þýðir að ég er komin í 5 kg frá því ég byrjaði :D Vííí og í tilefni þess fór ég í klipp og lit hjá Hárakademíunni :)
Mér var ráðlagt að gera alltaf svona markmið og ná þeim og verðlauna mig :) ég er alveg sammála því ef maður hefur verðlaunin á raunhæfu verð bili hehe
Og svo í lokin
Ég er að taka þátt í svona "ekki vigta þig í mánuð" átaki :) Þannig að ég fer ekki á vigtina fyrren 14 mars, verður MJÖG erfitt því ég er vigtanasjúk en ég vona bara að ég sjái ágætis tölu eftir 4 vikur :)
Endilega skellið inn kommenti :) Finnst svo gaman að lesa þau og sjá að fólk er að skoða hjá mér rausið :)
Svakalega dugleg elsku frænka :)
ReplyDelete