Vika 3 var, já öðruvísi svolítið :)
Gengur samt vel :) á meðan vigtin fer niður þá er ég ánægð :)
Hélt ég væri að fá of mikla fitu og minnkaði hana niður í mjög litla fitu, og morguninn eftir var ég búin að þyngjast :o Þannig að ég jók hana aftur og léttist smávægilega :)
Ætla aðeins að skoða dagana hjá mér í myfitness pal næstu viku og sjá sirka hvernig dagarnir eru í kolvetni, fitu og próteini :)
Auk þess sem ég ætla að reyna að pota æfingum inn :) ætla að sprika hérna heima hvern morgun í smá stund :) þarf bara að hafa mig í það.
En í dag er 12 dagurinn á cn :) Og LOKSINS komið að nammidegi :) ég ætla að tríta mig því ég er búin að vera svo dugleg. Ætla sko að fá mér kfc (sem er mitt uppáhald) og nammi :) Nomm nomm nammidagurinn minn er í 6 tíma og ég ætla að byrja kl 5 og enda kl 11 og fer þá bara að sofa :)
Kl er bara hálf 2 núna haha get ekki beeeeeeðið :)
En allavega þessa vikuna er farið 1.1 kg sem þíðir að það eru farin 4 kg á 3 vikum, samt eiginlega bara 2 vikur þarsem fyrsta vikan fór í smá fokk :) Ég er bara nokkuð ánægð með það :) og held ótrauð áfram :)
Ætla að reyna að minnka pepsí maxið aftur :o já ég féll alveg þokkalega í pepsí max bindindinu mínu :o og ég er að spá í að drekka það áfram, en í hófi. jafnvel bara að leyfa mér 1 glas á kvöldin eða eitthvað þannig :) Æ ég er enn að melta þetta, ég bara get ekki hætt og ég ætla ekkert að neyða mig til þess strax. Finnst alveg nóg að taka mataræðið og breyta því svona rosalega.
En jæja nóg af bulli í mér í dag :)
No comments:
Post a Comment