Jæja, þá er komið að því..
Frökenin ætlar að reyna að koma sér í sitt besta form, bæði andlega og líkamlega.
Ég ætlaði mér alltaf að vera rosa flott og slim þegar ég færi í nýjan tug, en í staðinn þá verð ég það á árinu (vonandi) ;) Hihi Rokka svo næsta tug fyrir ofan og verð one sexy mama hihi ;)
Ég er búin að byrja á einu aðhaldi og gefast upp, fara yfir í annað og gefast upp og þar frammeftir götum. Alltaf að byrja og hætta, byrja og hætta og ég stofnaði þetta blogg til að koma frá mér mínum hugsunum og kanski fá smá pepp í kommentum.
Ég ætla ekki að byrja of skart, svo ég gefist ekki upp strax og ætla ég mér að setja mér lítil vikumarkmið til að byrja með.
Mig langar rosalega á námskeið í reebok fitness sem heitir Nýtt líf, og er með biggest loser þjálfaranum Gurrý, er að safna mér fyrir svoleiðis námskeiði en það er frekar dýrt, 40 þúsund fyrir 10v. Samt ekki það dýrt ef maður metur heilsuna meira en peningana.
Þessi vikumarkmið eru
Borða reglulega
Drekka meira vatn (þó að það sé með smá djús bragðefni)
Reyna að gera magaæfingar eða eitthverja smá þjálfun hérna heima.
Langtíma markmið
Komast í kjörþyngd
Vera í góðu líkamlegu formi, sem og andlegu.
Hugsanir
Á maður að hengja sig á einn nammidag í viku, eða leyfa sér að fá t.d smá súkkulaðibita þegar þörfin er sem mest þó að það sé á virkum degi?
Spurningar um brauðmeti, á maður frekar að fara í hrökkbrauð/kex en t.d ristaða brauðsneið? Ég sé ekki muninn annað er loftmikið hveiti og hitt er loftþétt hveiti = bæði hveiti, og ég verð ekkert södd af hrökkbrauðinu og þarf meira af því en brauði.
Annað, hvað fær maður sér í staðinn fyrir brauð?
Vitði þið um eitthvað bragðgott sem maður getur nartað í ef manni langar svo í eitthvað?
Mun svo Setja hér inn vigtunartölurnar vikulega :) og kanski ég hendi inn cm mælingunum 1 sinni í mánuði.
No comments:
Post a Comment