Saturday, January 24, 2015

Viku seinna :)

Jæja. komin viku prufukeyrsla á hollustu og hreyfingu, og ég get staðfest það hér með að það var hvorugt í hávegum haft þessa vikuna :/
Komst að því í gær af hverju ég er búin að vera með brjálaða sælgætis og nartþörf þessa vikuna, og kenni ég fröken rósu um það !! Allt henni að kenna !! :)

EN hey, það jákvæða er að fröken vigthildur sagði mig heilum 100gr léttari þennan laugardaginn heldur en þann seinasta :) Vúbb vúbb þrátt fyrir þyngdaraukningu sem fylgir henni rósu og bilað sukk og svínerí þessa viku :) Tel það nú bara jákvætt !

Tók mig til áðan og tók "fyrir" myndir (eða kallinn tók þær) og fékk smá sjokk þegar ég skoðaði þær í tölvunni. Sjitturinn titturinn og allt það hvað ég er orðin feit :o vissi það alveg en vissi það samt ekki, æ skiljiði mig ?

Þannig að núna ætla ég að koma mér í það, að kaupa kort í ræktina og actually að mæta í ræktina í staðinn fyrir að kaupa áskrift og vera stuðningsaðili :) Hef í ófá árin verið einn af þeim sem heldur stöðinni uppi hehe ;)

Ég er rosalega mikið að spá í matarræðið, hvað ég á að gera.
Er búin að komast að því að mig langar ekki á herbalife (á samt helling af því) kallinn segir að ég eigi að fara í það að borða allt, en í hófi og kanski minnka sætindi og kex.
Mig langar mikið að fara á carb nite, mér leið mjög vel líkamlega þegar ég var á því en hausinn á mér er svo klikk að ég gefst alltaf upp.
Var á lkl og það gekk mjög vel fyrir utan það að ég fékk engann nammidag, ég verð að hafa nammidag/svindl dag til að halda út lífið bara :) Verð að geta fengið mér það sem ég vil þó það sé bara 1 dag, ég get ekki andlega bannað mér allt, þá fer ég mjög niður á andlega sviðinu.
Eina með carb nite, er að það er dálítið dýrt, samt ekki ef maður miðar við það sem maður eyðir í óþarfa hihi

Æ ég er svo óákveðin :) Ætla að passa mig bara þartil ég tek ákvörðunina um hvað ég geri :)

Jæja viku markmiðin eru nokkurnvegin þau sömu hehe

Vikumarkmið

Borða reglulega
Drekka meira vatn (þó að það sé með smá djús bragðefni)Reyna að gera magaæfingar eða eitthverja smá þjálfun hérna heima.

Minnka kex át

1 comment:

  1. Flott plan :)
    Ég er að nota plan kallsins þíns, tel kaloríurnar en banna mér ekkert og þa gengur so far :) Finnst carb nite líka spennandi!

    það þýðir ekki að vera á plani sem manni líkar ekki svo endilega prufa hvað hentar þér =)

    ReplyDelete