Jæja 2 vikur af nýja "lífinu" búnar :)
Gekk hræðilega fyrstu vikuna og fóru þá 100gr af, seinni vikan gekk hinsvegar mikið betur og var vigthildur mjög örlát við mig :) Heil 3 kg sem fuku þessa vikuna :) Vá hvað ég er ánægð, en veit það þó að þetta er mikið til vatnslos en vonandi smá fitutap :)
Ég byrjaði að fylgja matarræði á mánudaginn sem heitir Carb Nite og er svipað og lkl nema aðeins strangari og svo 1 nammidagur í viku :) En í byrjun á maður þó að hreinsa í 9.5 dag og svo nammi, en ég aðeins lengi hana því ég vil hafa nammidaga á laugardögum :) Nammiland og það, you know hihi
Besta í heimi og nammið mitt er rjómi og walden farms pancake sirup saman í skál, og þeytt, það er einsog hin besti karamellubúðingur með rjóma :) syndsamlega gott hihi
Á samt frekar erfitt með að fá fituna svona ef hún er ekki úr rjóma, því ég er svo hrikalega hugmyndasnauð :/ En ég reyni allavega mitt besta og meina það eru farin 3 kg :)
Er svo líka að reyna að hætta pepsí maxinu. hætti í heila 3 daga í vikunni :) Eeeeeeen féll á þessu og þamba nú maxið einsog ég fái borgað fyrir það.
Ekki nógu og sniðugt, tek mig til og hætti aftur þegar þessir 2 lítrar sem ég á klárast hihi
Keypti mér svona Jarðaberja low carb mineral drink á 50% afslætti í Nettó :) held að það sé sniðugt, mér finnst allavega jarðaberjasvali mjög góður haha :)
Jæja hef þetta ekki meir í kvöld :)
Endilega kommentið þið hjá mér :) Finnst svo gaman að fá komment
Kv
frábært hja´þér að hafa agann í svona mataræði , vildi að ég hefði aga þessa dagana ... vantar sko alveg agann núna
ReplyDeleteEr mjög stolt af þér, frábært fyrir þig að geta skrifað um hvernig þér gengur og fá smá pepp í leiðinni :)
ReplyDeleteMeð mat þá mæli ég með epli & hnetusmjör frá sollu .. himnesk blanda !! Færð líka fyllingu í magann :) Svo fæ ég mér oft hrökkbrauð með eplum og hámark eða hámark og ávöxt .. mjög gott ..
Ættir að sjá það ef þú ert með Carb nite matarplan að þú verður að hafa líka prótein .. ekki bara ávöxt eða hrökkbrauð þú verður ekkert södd af því lengi :)
Svo mæli ég með að eiga alltaf slatta af klökum í frysti & sítrónur á borði til að geta alltaf fengið þér ískalt sítrónuvatn þegar þú verður þyrst í eitthvað gott ;)
MUNDU SVO að þótt þú fallir og fáir þér pepsi max þá áttu ekki að hugsa "æi fokkit ég er búin að fá mér ég er búin að skemma þetta fæ mér bara 2l.. " því að eitt glas er betra en 2l.. :)
og ekki fara svöng eða þyrst í búð .. og þegar þú grípur í pepsi max ( sem þú átt ekki að gera ) hugsaðu þig þá vel og vandlega um áður en þú leggur hana í körfuna .. það hefur oft hjálpað mér ef ég hef ætlað að taka eitthvað sem ég ætti ekki að vera að fá mér :) ..